Saturday, March 15, 2008

Af menntun

Var ad átta mig á thví ad Probigua er frábaer spaenskuskólinn.

Fór í tvaer áhugaverdar heimsóknir med honum í vikunni. Annarsvegar í stúlknaskóla fyrir 15-19 ára Maya-stúlkur. Í honum eru 2-3 stúlkur úr öllum Maya-samfélögum Guatemala, en thau eru víst 21 hér, thar af leidandi er 21 mismunandi tungumál talad í skólanum fyrir utan spaenskuna. Thetta finnst mér magnad, thví Guatemala er ekki svo mikid staerra en Ísland.
En í thessum skóla laera stúlkurnar til kennara og eftir 2 ár snúa thaer til thorpsins síns og kenna börnunum thar ad lesa og skrifa. Og af thví spaensku skólinn minn er "non-profit" thá rennur hlutu af gródanum í ad styrkja kennsluna í thessum skóla.

Og enn og aftur af thví skólinn minn er "non-profit" thá byggir hann einn nýjann skóla á hverju ári í thorpi thar sem ekki er fyrir skóli. Menntamál eru nefnilega ekki ofarlega á stefnuskránni hér í Guatemala. Ríkisstjórninni finnst ekki taka thví ad byggja skóla fyrir faerri börn en 70 og thar af leidandi eru ansi mörg thorp sem eru án skóla og thar af leidandi börn án menntunar.

Hin heimsókn vikunnar var einmitt í skóla sem Probigua var ad klára ad byggja og fengum vid nemendurnir ad vera vidstödd vígsluathöfnina. Thad var mikil gledi í thessu litla thorpi med nýja skólann og stódu börnin stollt med hönd á brjósti og sungu fyrir okkur thjódsöng Guatemala.

Ekki nóg med thad ad Probigua styrki menntun Maya-barna hér, thá gengur theim líka bara nokkud vela ad mennta mig og get ég nú stollt sagt ad ég er farin ad tala í nútíd, thátíd og frámtíd. Thví hef ég ákvedid ad dvelja eitthvad lengur hér í Antigua.

Wednesday, March 5, 2008

Eldgos og svartar strendur

Ég eldfjallaeyjubúinn (sem aldrei hefur séd íslenskt eldgos) hélt ég hefdi séd alvöru eldgos í Chile, en thad var nú ekkert samanborid vid Volcan Pacaya. Stód svona 4 metra frá hraunstraumnum, alveg hreynt magnad.

Annars fór ég í smá ferdalag um helgina til Monterrico vid Kyrrahafid, sleikti sólina, svaf og lifdi á fiski og ferskri kokosmjólk (beint úr kokoshnetunni). Öldugangurinn tharna var svakalegur, aetladi rétt ad dífa tánum í Kyrrahafid, en tharna er thad allt eda ekkert. Hélt mig thví mestmegnis vid sundlaugina, sem var ljúft.

Kvedjur úr sólinni.

Sunday, February 24, 2008

Kominn tími...

Jaeja, nú er ég búin ad vera í Antigua Guatemala í taepar tvaer vikur og vorvedrinu hér hefur gengid ágaetlega ad thída mig eftir vetrarhörkur New Yorkborgar, haegt og rólega er ég ad vakna til lífsins.

Hér bý ég hja Önnubellu 42ja ára einstaedri módur, sem skildi fyrir 2 árum, tók bílbróf fyrir 2 árum og fékk sér teina fyrir 2 árum (kaerstinn hennar er tannlaeknir). Hörkudugleg kona sem vinnur fullan vinnudag í skóla og sér svo ein um heimili med tveimur unglingum og 3-4 spaenskunemum. 18. ára sonur hennar Estuardo er mikill tónlistarunnandi og veit ekkert skemmtilegra en ad blasta lúdrasveitatónlist, thungarokk og gömul Bítlalög daginn út og inn. Jackeline 16. ára dottir hennar hlustar svo á Barbiegirl og rómansk-amerískt popp oní thetta allt saman. Svo er víst Guatemalísk poppstjarna skotinn í henni. Allt saman alveg svakalega hressandi.

Maturinn hér er bara almennt gódur, fékk t.d. nautakjöt med guacamole, radísum og svartri tortillu í hádeginu í gaer. Sem sagt allt gott ad frétta hédan, ég er vel naerd á líkama og sál.

Svo má ekki gleyma ad nefna thad ad hún Anna vinkona var ad eignast sinn 3 strák á föstudag, til hamingju.